Bókaspjall með Karin Härjegård og útgáfuboð
Bókasafn Kópavogs | Aðalsafn, Hamraborg 6a, 200 Kópavogur Kort
mið 9. des 2026 18:00
Bækur eru bestar | Read for Real
Miðvikudaginn 9. desember kl. 18:00 heimsækir sænski metsöluhöfundurinn Karin Härjegård aðalsafn og segir frá bókum sínum, rithöfundaferli og þeim innblæstri sem hún sækir í fjöll og skóga Jämtlands í Svíþjóð. Guðrún Sóley Gestsdóttir stýrir umræðum.
Að loknu bókaspjalli verður haldið útgáfuhóf í tilefni af útgáfu fimmtu bókar Karin í íslenskri þýðingu. Sögur útgáfa annast útgáfu á bókum Karin á Íslandi og hægt verður að kaupa bækur hennar á staðnum.
Viðburðurinn fer fram á ensku. Túlkur verður á staðnum sem mun þýða frá ensku yfir á íslensku og gestum stendur til boða að fá heyrnartól. Takmarkaður fjöldi er af heyrnartólum svo skráning er nauðsynleg og fer fram hér að ofan með því að smella á Tickets.
Léttar veitingar í boði og öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.
______________________________________________________
Karin er rithöfundur, sögumaður, söngkona og prestur og hefur skrifað fjölda bóka sem hafa notið mikilla vinsælda meðal lesenda á Norðurlöndum. Verk hennar einkennast af hlýju, mannlegum samskiptum og persónum sem fá að vera bæði breyskar og margbrotnar, rétt eins og fólk er í raun og veru.
Áður skrifaði Karin sögulegar skáldsögur en á síðari árum hefur hún vakið mikla athygli fyrir hugljúfar samtímasögur sínar. Bækur hennar sækja innblástur í stórbrotna náttúru sænsku fjallanna og fjalla um ást, von, ný tækifæri og þau tímamót sem móta líf fólks.
Árið 2018 hlaut Karin menningarverðlaun Länstidningen og árið 2022 var Vöffluhúsið í fjöllunum kjörin sem ljúflestrarbók ársins 2022 í Svíþjóð og á Storytel. Í fyrra fékk Karin svo útgefendaverðlaunin Printzaren eftir að bækur hennar höfðu selst í meira en 200.000 eintökum.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur í notalegri bókastund með einum vinsælasta ljúflestrarbókahöfundi Norðurlanda.
______________________________________________________
Viðburðurinn er hluti af Bækur eru bestar, samevrópska verkefninu Read for Real, European Authors Day sem er styrkt af Creative Europe. Markmið verkefnisins er að vekja áhuga á bóklestri með því að tengja lesendur og höfunda saman í lifandi samræður um bækur og lestur.