Bókbandssmiðja
Bókasafn Kópavogs | Aðalsafn, Hamraborg 6a, 200 Kópavogur Kort
lau 17. okt 2026 13:00
Komdu og lærðu undirstöðuatriði bókbands í fjölskyldusmiðju á Bókasafni Kópavogs. Við lærum um pappír, brjótum saman síður, búum til kápu og saumum saman okkar eigin litlu bók með einfaldri bókbandstækni.
Allur efniviður er á staðnum og þú tekur bókina þína með þér heim að smiðju lokinni.
Engin fyrri reynsla er nauðsynleg. Ath. að notaðar verða nálar og skæri og því þurfa yngri börn að vera í fylgd með fullorðnum.
Leiðbeinandi er Iva Franjic
Frítt er inn og öll hjartanlega velkomin meðan húsrúm leyfir.
Fjölskyldustundir á laugardögum eru notalegar samverustundir, gjarnan smiðjur, sem fara fram í menningarhúsunum í Kópavogi og eru styrktar af menningar- og mannlífsnefnd.