Bólguhamlandi matarræði
mið 21. okt 2026 18:00
vefnámskeið
Ásdís mun fjalla um mikilvægi þess að leggja áherslu á bólguhamlandi mataræði til bættrar heilsu og líðan. Farið verður yfir ákveðnar fæðutegundir og jurtir sem taldar eru bólguhamlandi og með hvaða hætti við getum nýtt okkur þær sem hluta af daglegu mataræði
Leiðbeinandi: Ásdís Ragna Einarsdóttir, grasalæknir
Ásdís Ragna Einarsdóttir grasalæknir er með BSc í grasalækningum frá University of East London og hefur rekið eigin viðtalsstofu um árabil. Hún hefur haldið fjölda fyrirlestra og námskeið um land fyrir einstaklinga, hópa og fyrirtæki. Ásdís leggur áherslu á að efla og hvetja einstaklinginn til jákvæðra lífsstílsbreytinga með því að stuðla að heilbrigðari lífsvenjum. Ásdís er með MPH gráðu í lýðheilsuvísindum frá Háskóla Íslands og liggur áhugasvið hennar í heildrænni og fyrirbyggjandi nálgun á heilsueflingu.
Hvar og hvenær:
21. október klukkan 18:00-19:30
Verð: 19.900 kr*
*ATH: Stéttarfélögin Aldan, Samstaða, Kjölur, Sameyki, Verslunarmannafélag Skagafjarðar og stéttarfélög sem eru aðilar að Iðunni greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn. Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi