Breiðbandið - Geimsteinn 50 ára

Breiðbandið - Geimsteinn 50 ára

Rokkheimur, Skólavegi 12, Keflavík

fös. 09.10.2026 20:00

ISK 5900.00
Miðar / Skráning
ISK 5900.00
Miðar / Skráning

Sveitin gaf út þrjár plötur hjá Geimsteini og ætlar nú að dusta rykið af lögunum, sögunum og væntanlega nokkrum misgóðum bröndurum sem hafa safnast upp í gegnum tíðina.

Kassagítar og banjó verða við höndina, allir syngja og einn talar töluvert meira en hinir eins og það hefur alltaf verið.

Öll vinsælustu lög sveitarinnar, og líka sögur, fá að hljóma og þetta verður án efa stærsta gigg sveitarinnar síðan hún tróð upp í Mall of America.

Létt, skemmtileg og líklega nokkuð ófyrirsjáanleg kvöldstund með Breiðbandinu í skúrnum á Skólavegi 12.

Viðburðurinn er styrktur af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.

Flytjendur