Myndlist og teikning fyrir 6-9 ára
Klifið Skapandi setur, Skólabraut 5, 210 Garðabær Kort
þri. 07.07.2026 13:00
Sumarnámskeið fyrir krakka sem elska að teikna og skapa. Á námskeiðinu læra nemendur helstu undirstöðuatriði í teikningu og fá tækifæri til að æfa sig í að teikna umhverfi sitt og prófa fjölbreytt efni og verkfæri til listköpunar. Á þessu námskeiði fá börn að stíga inn í heim ævintýra og sköpunar. Við förum út í náttúruna, uppgötvum nýjan efnivið, veltum fyrir okkur sögum og verðum sjálf hluti af ævintýrum sem við búum til saman. Börnin læra að skoða umhverfið sitt með nýjum augum, vinna saman og nota hugmyndaflugið til að skapa listaverk, sögur og persónur.Við munum nýta efnivið úr náttúrunni – greinar, lauf, steina, vatn og fleira – sem hráefni í alls konar verkefni. Í gegnum leik, rannsóknir og samtal fá börnin að þróa með sér sköpunargleði, sjálfstæða hugsun og gleðina við að prófa sig áfram.
Flytjendur
-
Klifið Skapandi seturNámskeið fyrir söngelska krakka sem vilja syngja sig í gegnum sumarið.