Jurtir, klaustur og börn - Fræðsluganga

Jurtir, klaustur og börn - Fræðsluganga

Friðarsúlan, Viðey, 104 Reykjavík Kort

lau. 04.07.2026 13:15

Laugardaginn 4. júlí mun Björk Bjarnadóttir, umhverfis-þjóðfræðingur leiða fræðslugöngu í Viðey sem er miðuð að börnum á aldrinum 6 til 10 ára. Farið verður frá Skarfabakka kl 13:15, Björk mun taka á móti gestum uppi við Viðeyjarstofu.

Þema göngunnar eru jurtir, klaustur og börn.
Í ár eru 800 ár síðan klaustur var reist í Viðey. Björk og Borgarsögusafn halda upp á þetta stórafmæli með því að fræða börn lítillega um þetta merka klaustur og plöntur eyjunnar á sama tíma.
Klaustrið sjálft er ekki sýnilegt en það sem við getum rannsakað eru örnefni á eyjunni sem tengjast klausturstímanum og reynt að sjá fyrir okkur lífið sem átti sér stað á eyjunni þegar klaustrið stóð þar.
Spáð verður í eitthvað af þessum spurningum:
Hvað er klaustur? Hvað var og er gert í klaustrum? Hvað er nunnuklaustur og hvað er munkaklaustur? Var þetta munka- eða nunnu klaustur sem var í Viðey? Voru einu sinni fleiri klaustur á Íslandi?
Klaustur tengjast mikilli garðyrkjuhefð, flestum þeirra fylgja eldhúsgarðar og jurtlækningagarðar. Í Viðey var klaustursgarður og munum við spá í hvaða jurtir gætu hafa verið ræktaðar þar og hvernig þið gætuð prófað að setja upp ykkar eigin eldhús-og jurtalækningagarð.
Gengið verður um svæðið, fræðst og leikið saman.
Endilega takið með ykkur plöntu-og fuglabækur.
Öll velkomin!
Ferjan siglir frá Skarfabakka laugardaginn 4. júlí kl. 13:15 og til baka kl. 15:30 en þið getið dvalið lengur ef þið viljið. Við hvetjum ykkur til að kaupa miða fyrir fram á vef Eldingar. Sjá link hér: https://elding.is/videy-ferry-skarfabakki

Flytjendur