Strútsstígur

Strútsstígur

Mjódd, Þönglabakki, 109 Reykjavík Kort

lau. 18.07.2026 08:00

Í víðum fjallasal breiðir Hólmsárlón úr sér en yfir því gnæfa Svartahnjúksfjöll og Torfajökull. Í suðri má sjá tindinn á fjallinu Strút, en af honum er nafn leiðarinnar dregið.

Gangan hefst í Hólaskjóli en þaðan er um tveggja klukkustunda gangur í skálann við Álftavötn þar sem gist er fyrstu nóttina. Frá Álftavötnum er gengið með Svartahnjúksfjöllum í Hólmsárbotna og þar gefst jafnan tækifæri til að skola af sér ferðarykið í hinni rómuðu Strútslaug. Úr lauginni er gengið í Strútsskála þar sem gist er tvær nætur. Þann dag sem dvalið er í skálanum er gengið um einstakt umhverfi skálans. Á lokadegi liggur gönguleiðin um Mælifellssand í Hvanngil þar sem rúta tekur upp hópinn.

Brottför er frá Mjódd. Innifalið í verði er fararstjórn, rútuferðir, flutningur á farangri milli skála og allar skálagistingar. Grillveisla í Strútsskála er einnig innifalin þar sem þátttakendur hjálpast að með matinn.

Ath! Fleiri dagsetningar eru í boði.

Nánar um ferðina: https://www.utivist.is/ferdir-og-dagskra/lengri-ferdir/vidburdur/6775/strutsstigur

Flytjendur

  • Útivist
    Útivist

    www.utivist.is | Útivist er ferðafélag sem býður upp á fjölbreyttar ferðir um náttúru Ís