Fornar rætur Árbæjar - 10 ára afmælisveisla / The Ancient Roots of Árbær - 10 Year Anniversary

Fornar rætur Árbæjar - 10 ára afmælisveisla / The Ancient Roots of Árbær - 10 Year Anniversary

Kistuhyl 4, 110 Reykjavík, Iceland,

sun. 28.06.2026 13:00

Verið velkomin í 10 ára afmælisveislu fornleifarannsóknarinnar Fornar rætur Árbæjar sunnudaginn þann 28. júní kl. 13-16. Öll velkomin! 🎂

Dagskrá:

✨13:00 Umfjöllun um tilurð rannsóknarinnar

🗣️13:15 Fornleifaleiðsögn um uppgraftarsvæðin með Sólrúnu Ingu Traustadóttur, stjórnanda rannsóknarinnar

🪏13:00-16:00 Fornleifafræðingar segja frá og sýna gripi sem hafa fundist, sem og tæki og tól sem hafa nýst við uppgröftinn

📸13:00-16:00 Myndasýning frá síðustu 10 árum uppgraftarins

🗺️13:00-16:00 Fjölskylduratleikur með fornleifaívafi

✏️13:00-16:00 Teikni- og litasmiðja

Fornar rætur Árbæjar er fornleifarannsókn sem fer fram á bæjarhóli Árbæjar á Árbæjarsafni.

Fornleifarannsóknin hófst árið 2016 og er eitt af markmiðum hennar að svara spurningum sem tengjast upphafi og þróun byggðar í Árbæ og af hverju hann var valinn til búsetu í fyrstu; Var það vegna laxins í Elliðaánum? Var Árbær upphaflega sel frá öðrum bæ, Gufunesi, Breiðholti eða Vík? Settist fólk að í Árbæ strax á 9. öld og byggði sér skála? Niðurstöður rannsóknarinnar munu varpa ljósi á þróun samfélagsins frá fyrstu öldum byggðar á svæðinu.

Meira um Fornar rætur:

👉https://borgarsogusafn.is/fornar-raetur-arbaejar

Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið.

Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur).

Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins.

Öll bílastæði eru ókeypis.

//

Flytjendur

  • Borgarsögusafn Reykjavíkur / Reykjavík City Museum
    Borgarsögusafn Reykjavíkur / Reykjavík City Museum

    Eitt safn á fimm frábærum stöðum. Borgarsögusafn heyrir undir Reykjavíkurborg.

  • Safnfræðsla Borgarsögusafns
    Safnfræðsla Borgarsögusafns

    Fréttasíða fræðslustarfs Borgarsögusafns Reykjavíkur

    Fræðslustarf Borgarsögusafns tekur mið af Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, Aðalnámskrá og stefnu Reykjavíkurborgar sem og öðrum innlendum og alþjóðlegum stefnum í menningarmálum.