Pappadiskaföndur

Pappadiskaföndur

Borgarbókasafnið Úlfarsárdal, Úlfarsbraut 124, 113 Reykjavík Kort

fim. 03.09.2026 15:30

Hver kannast ekki við að hafa keypt of marga pappadiska fyrir útileiguna?
Í september ætlum við að búa til skemmtilegt föndur úr hálfum pappadiskum og pappírsafgöngum eða öðrum efnivið sem til er á bókasafninu. Hægt er að gera regnboga, ávexti, tungl og plánetur, nú eða hvað sem okkur dettur í hug!
Fyrir hverja er smiðjan?
Smiðjan hentar fullorðnum og eldri börnum. Yngri börn eru velkomin en þurfa að vera í fylgd fullorðins sem getur veitt aðstoð.
Við hvetjum fullorðna til að mæta og leyfa sköpunargleðinni að njóta sín í notalegri og skemmtilegri stund. Aðgangur er ókeypis og skráning er óþörf.
Tilbúningur er viðburðarröð sem fer fram á:
Borgarbókasafninu Spöng fyrsta miðvikudag hvers mánaðar.
Borgarbókasafninu Árbæ annan þriðjudag hvers mánaðar.
Borgarbókasafninu Úlfarsárdal fyrsta fimmtudag hvers mánaðar.
Nánari upplýsingar:
Tinna Birna Björnsdóttir | Viðburðir
tinna.birna.bjornsdottir@reykjavik.is