Fyrsta fræðakaffi haustsins verður 21. september en þá ætlar séra Arna Ýrr Sigurðardóttir, sóknarprestur í Grafarvogssókn, að fjalla um drauma og draumaráðningar.
Draumar eru sammannlegt fyrirbæri og hafa heillað manneskjur á öllum tímum. Það er reynsla margra að draumatúlkun getur hjálpað fólki við að takast á við ýmis viðfangsefni í sínu lífi, hvort heldur sem er tengd tilfinningum, ýmiskonar aðstæðum og jafnvel flóknum úrlausnarefnum og vandamálum. Margir álíta að ef fólk gefur draumum sínum gaum, þá geti það eflt sköpunargáfu sína, aukið innsæi sitt og komið út sem sterkari og heilli manneskjur. Þar að auki eru draumar og draumaráðningar vinsælt umræðuefni á meðal fólks og gaman að bæta í sarpinn ýmsum fróðleik sem skemmtilegt er að hafa á takteinum.
Arna hefur notað draumavinnu í sálgæslu í mörg ár en auk þess hefur hún haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða um drauma og draumavinnu.
Fræðakaffi er viðburðaröð sem fer fram á Borgarbókasafninu í Spönginni og hefur notið mikilla vinsælda.
Nánari upplýsingar:
Katrín Guðmundsdóttir, Borgarbókasafnið Spönginni
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is
Arna Ýrr Sigurðardóttir
arna@grafarvogskirkja.is
Draumar - spegill sálarinnar
Borgarbókasafnið Spönginni, Spöngin 41, 112 Reykjavík Kort
mán. 21.09.2026 16:30
Flytjendur
-
Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur
Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur leggur rækt við mannlífið í borginni á fjölbreyttan hátt.