Draumar & veruleiki
Borgarbókasafnið Gerðubergi, Gerðuberg 3, 111 Reykjavík Kort
fös. 31.07.2026 08:00
Maríu Harðardóttur frá árinu 2020. Fyrsta sýning TINNU-hópsins var haldin árið 2021 í Fjölskyldumiðstöðinni í Gerðubergi en sex sýningar hafa verið haldnar síðan samstarfið hófst.
Sýningin Draumar og veruleiki er afrakstur TINNU-hópsins þar sem ungar konur hafa unnið að því að tengjast sjálfum sér og öðrum konum í gegnum sköpun myndlistar. Þær fengu fræðslu, kynntu sér efni og aðferðir, fengu þjálfun í tækni, gerðu æfingar út frá skynjun og samtali, virkjuðu forvitnina og ímyndunaraflið og fundu farveg fyrir persónulega tjáningu. Ekki síst fengu þær tækifæri til að upplifa listsköpun sem heilandi ferli.
Fríða María Harðardóttir
Samstarfsaðilar/Framleiðendur:
TINNA Virknihús. Borgarbókasafnið Menningarmiðstöðinni Gerðubergi 3-5 og Fjölskyldumiðstöðin Gerðubergi.
Flytjendur
-
TINNA
TINNA er virkniúrræði fyrir unga, einstæða foreldra á vegum Reykjavíkurborgar og félags- og húsnæðismálaráðuneytisins. Í TINNU sækja þátttakendur ýmsa virkni og hafa m.a. unnið saman að listsköpun í hópi undir handleiðslu myndlistarkennarans Fríðu Maríu Harðardóttur frá árinu 2020.
-
Fríða María HarðardóttirArtist and art teacher, known for her first art exhibition.