Kvöldganga | Duchy, cienie i tajemnice - Spacer literacki w języku polskim / Bókmenntaganga á pólsku
Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort
fim. 09.07.2026 20:00
Verið velkomin í bókmenntagöngu á pólsku!
Hvað hreyfist í skuggunum á götum Reykjavíkur? Hvað leynist í görðum, tjörnum og þröngum skúmaskotum? Um hvað hvísla látin skáld og rithöfundar sem grafnir eru í Hólavallagarði?
Með bók í hönd leiðir rithöfundurinn og skáldið Ewa Marcinek bókmenntagöngu á pólsku um miðbæ Reykjavíkur.
Kvöldgangan hefst við Borgarbókasafnið í Grófinni, Tryggvagötu 15 og fer fram á pólsku.
Gangan hefst kl. 20:00 og stendur yfir til kl. 21:30.
Kvöldgangan er hluti af viðburðarröðinni Kvöldgöngur sem er samstarfsverkefni Borgarbókasafns, Borgarsögusafns og Listasafns Reykjavíkur.
Kvöldgöngurnar fara fram á fimmtudögum yfir sumarmánuðina og eru með öllu gjaldfrjálsar. Öll eru hjartanlega velkomin.
Heildardagskrá kvöldganga 2026 má finna hér:
https://borgarbokasafn.is/kvoldgongur
Flytjendur
-
Kvöldgöngur
Sumarkvöldgöngurnar 2025 hefjast 19. júní.
-
Ewa Marcinek
Polish-Icelandic writer and cultural organiser, co-founder of several literary and artistic initiatives.