Þegar Trölli stal jólunum! Söngleikur
Borgarleikhúsið | Stóri Salur, Listabraut 3, 103 Reykjavík Kort
lau. 26.12.2026 17:00
Þegar Trölli stal jólunum sem frumsýndur verður á Stóra sviði Borgarleikhússins í nóvember 2026.
Þegar Trölli stal jólunum er frábær söngleikur fyrir alla fjölskylduna og hentar vel börnum frá 4-5 ára aldri. Sýningin verður 2 tímar með hléi og er sýnd á Stóra sviðinu.
Þetta er stórsýning með stórum hópi leikara og dansara.
Trölli lifir einmana lífi með hjarta sem er „tveimur stærðum of lítið”. Hann þolir ekki jólin en í næsta bæ eru þau haldin hátíðleg með söng, gjöfum og kræsingum, Trölla til mikils ama. Eitt árið tekur hann sig til og reynir að stela jólunum í skjóli nætur, með því að fjarlægja allt sem á þau minnir. Þegar jólasöngvar hljóma enn morguninn eftir kemst Trölli að því að jólin felast ekki í veraldlegum hlutum - heldur í hjörtum fólks.
Söngleikurinn Þegar Trölli stal jólunum er byggður á hinu sívinsæla ævintýri Dr. Seuss frá árinu 1957.
Jólaævintýri fyrir alla fjölskylduna!
Á völdum dagsetningum verður boðið upp á skemmtilegt jólaball eftir sýninguna og munu jólasveinar halda uppi stuðinu. Jólaballið verður í forsal Borgarleikhússins og hefst strax eftir sýningu. Innifalið í jólaballinu eru léttar veitingar.
https://www.borgarleikhus.is/syningar/thegar-troelli-stal-jolunum
Flytjendur
-
Björgvin Franz Gíslason
Leikari og gestur á tónleikunum.
-
Björn Stefánsson
Sérstakur gestur
-
Halldór Gylfason
Piano student from LHÍ.
-
Hilmir Jensson
Leikstjórn
-
Sigrún Edda Björnsdóttirnarrator
-
Þórunn Arna Kristjánsdóttir
Leikstjóri
-
Gabriel Marling RideoutPerformer and co-creator of movement.
-
Iðunn Eldey StefánsdóttirLeikari
-
Nína Sólrún TamimiLeikari