Leiðsögn útskriftarnema Ljósmyndaskólans

Leiðsögn útskriftarnema Ljósmyndaskólans

Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort

mán. 14.12.2026 14:00

Verið velkomin í leiðsögn um útskriftarsýningu Ljósmyndaskólans. Útskriftarnemendurnir Elva, Gunnar Freyr, Íris Hadda og Lilja Birna leiða gesti um sýninguna.

Dag- og tímasetningar:

13. desember kl. 14-15 og 16-17

14. desember kl. 14-15

3. janúar kl. 16-17

4. janúar kl. 14-15 og 16-17

10. janúar kl. 14-15 og 16-17

11. janúar kl. 14-15 og 16-17

Á sýningunni eru verk þeirra nemenda sem ljúka diplómanámi í skapandi ljósmyndun frá Ljósmyndaskólanum í desember 2025.

Verkin á sýningunni eru fjölbreytt, viðfangsefni nemenda mismunandi og framsetning, listræn sýn og fagurfræði ólík. Endurspegla útskriftarverk nemenda þannig gróskuna í samtímaljósmyndun og fjölbreytta möguleika sem felast í ljósmyndamiðlinum.

Sýningarstjóri: Katrín Elvarsdóttir.

Viðburðamyndin er hluti af útskriftarverki Írisar Höddu.

Sýningin stendur frá 12. desember 2025 til 11. janúar 2026 og aðgangur er ókeypis.

Flytjendur