Leikritið eftir Ingu Steinunni
Háskolabíó | Salur 3, Hagatorg, 107 Reykjavík Kort
sun. 05.07.2026 20:00
Leikritið eftir Ingu Steinunni
Leikritið eftir Ingu Steinunni er leikrit eftir Ingu Steinunni. Hún hefur unnið lengi að því og hún er
nokkuð viss um að þetta sé hennar besta verk hingað til. Leikritið er aldrei eins vegna þess að á
hverri sýningu fær hún til liðs við sig nýjan gestaleikara. Gesturinn fær handritið í upphafi
sýningar og flytur verkið með henni án undirbúnings. Leikritið er spennuþrungið og fjallar um
dramatískt vinnusamband tveggja lögreglumanna. Mikilvægt er að flytja verkið sem fyrst áður en
að einhver stelur hugmyndinni hennar. Inga Steinunn er mjög spennt að fá ykkur og vonast til
þess að þetta verði ógleymanlegt kvöld.
Hugmynd
- Inga Steinunn Henningsdóttir
Handrit
- Inga Steinunn Henningsdóttir
- Elínborg Una Einarsdóttir
- Grímur Smári Hallgrímsson
Tækni
- Grímur Smári Hallgrímsson
Leikstjórn
- Grímur Smári Hallgrímsson
- Elínborg Una Einarsdóttir
Myndir
- Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir
Grafík
- Björg Steinunn Gunnarsdóttir
Hljóðmynd
- Andrés Þór Þorvarðarson
Sérstakar þakkir
- Gestaleikarar sýningarinnar
- Hákon Örn Helgason
- Afturámóti
- Tóma rýmið.
Flytjendur
-
Grímur Smári Hallgrímsson
Höfundur og leikari
-
Björg Steinunn Gunnarsdóttir
Meistaranemi í leikhús- og performansfræðum
-
Andrés Þór Þorvarðarson
tónlistarmaður og tónskáld
-
tóma rýmiðtóma rýmið er vinnustofa og tilraunaleiksvið ætlað til frumsköpunar á verkum sviðshöfunda og annars sviðslistafólks. tóma rýmið stendur fyrir tilraunakvöldum og viðburðum þar sem meðlimir sýna áhorfendum skissur að verkum sínum.