Kvöldmessa í Bústaðakirkju
Bústaðakirkja, Tunguvegur 25, 108 Reykjavík Kort
sun. 16.08.2026 20:00
Sunnudaginn 16. ágúst nk. kl. 20 fer fram kvöldmessa í Bústaðakirkju. Jónas Þórir organisti og félagar úr Kammerkór Bústaðakirkju annast um tónlistina. Séra Þorvaldur Víðisson flytur hugvekju og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum.
Fyrirgefningin er rauði þráðurinn í lestrum dagsins.
Verið hjartanlega velkomin í kvöldmessu í Bústaðakirkju.
Flytjendur
-
Jónas Þórir
Jónas Þórir er orgel- og píanóleikari
-
Kammerkór Bústaðakirkju
Kammerkór syngur undir stjórn Jónasar Þóris.