HönnunarÞing // DesignThing

HönnunarÞing // DesignThing

Stéttin - Húsavík, Hafnarstétt 3, 640 Húsavík Kort

fös. 25.09.2026 13:00

Velkomin á HönnunarÞing // DesignThing, hátíð hönnunar og nýsköpunar! Í ár verður hátíðin óvenjulega orkumikil 🥁⚡

Því áhersla ársins er á orku og margvíslega snertifleti hennar við hönnun og nýsköpun.

⚡️Hvað gerist þegar hugmynd kviknar?

⚡️Hvað gerist þegar neisti verður að veruleika?

⚡️Hvað gerist þegar hönnun fær víbrandi gott svigrúm?

Við erum afar spennt að sameina fjölbreytta sýn hönnuða, frumkvöðla og sérfræðinga á sviði orku og bjóða gestum að kanna hvernig orkumikið fólk, form, tækni og framtíðarsýn mætast í einstakri upplifun.

Á dagskránni eru hiti, gleði, vöruhönnun, frumkvöðlar á sviði orkumála, samfélagsverkefni tengd sjálfbærni, nýsköpun í auðlindanýtingu, krókódílar, nemar og kennarar frá LHÍ, dans, fjármögnun, sjóböð, óvæntir viðburðir og margt fleira.

Fram að hátíðinni munum við segja ykkur frá dagskrárliðunum og nánari upplýsingar - það sem skiptir máli núna er að taka tímann frá, njóta sumarsins og hlakka til þess að taka þátt í HönnunarÞingi 2026!

⚡️Við hlökkum til að sjá ykkur á einu eða öllu!

...✏️Smáa letrið:

🎟️Aðgangur er ókeypis á alla dagskrárliði nema á lokaviðburðinn í GeoSea

🔋Fosshótel býður upp á afslátt á gistingu þessa daga

👉 https://hradid.is/honnunarthing/

*með fyrirvara um líflegar breytingar og skapandi útfærslur á dagskrá

Flytjendur