Jazz í Djúpinu // Sigrún & Birna - Blossom Dearie
Djúpið, Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík Kort
fim. 02.07.2026 20:30
ÍSLENSKA
„Kvöld með Blossom Dearie“ er samstarfsverkefni Birnu Kristínar píanóleikara og söngkonunnar Sigrúnar Erlu. Með þeim leika bassaleikarinn Snorri Skúlason og trommarinn Scott McLemore.
Blossom Dearie var bandarísk jazzsöngkona, píanóleikari og lagahöfundur og var helst þekkt fyrir mjúka og létta rödd sína.
Á tónleikunum verður flutt grípandi og hlý tónlist af efnisskrá Blossom.
- -
Tónleikaröðin Jazz í Djúpinu fer fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:30 sumarið 2026. Djúpið er kjallarinn á veitingastaðnum Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). Inngangur í Djúpið er að aftan, til móts við Bæjarins beztu. Inngangurinn í kjallarann opnar kl. 20:00. Miðaverð er 4.000 ISK, miðar eru seldir við innganginn og í forsölu. Tónleikaröðin eru skipulögð af Jazzdeild FÍH og er styrkt af Menningarsjóði FÍH, Tónlistarsjóði og Reykjavíkurborg. Athugið að ekki er hjólastólaaðgengi á staðnum.
Flytjendur
-
Jazz í Djúpinu
Tónleikaröðin Jazz í Djúpinu fer fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:30 í Djúpinu sem er kjallarinn á veitingastaðnum Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). Inngangur í Djúpið er að aftan, til móts við Bæjarins beztu.
-
Iceland JazzInformation about the Icelandic Jazz and Improvised scene. News about album releases, concerts in Iceland, and concerts performed by Icelandic jazz musicians abroad // www.icelandjazz.is
-
Scott McLemoreTrommur