Opnun | Ingólfur Arnarsson: ... bara skel.
Marshallhúsið, Grandagarður 20, 101 Reykjavík Kort
fim 12. nóv 2026 17:00
Bústaðu viðburðinn!Fimmtudaginn 12. nóvember opnar fimmta og síðasta útfærsla sýningar Ingólfs Arnarssonar, … bara skel., sem stendur til 22. desember 2026 í i8 Granda.
Á árinu hefur listamaðurinn gert breytingar á arkitektúr sýningarrýmisins með viðbótum og tilfærslum. Í hverri umbreytingu eru blýantsteikningar fastur punktur, byggðar upp með marglaga krossskyggingu með óreglulegri þéttni. Hverri breytingu fylgir nýr texti eftir Lani Yamamoto.
Ingólfur Arnarsson (f. 1956) nam myndlist í Myndlista- og handíðaskóla Íslands í Reykjavík og í Jan Van Eyck Academie í Maastricht. Samhliða störfum að eigin myndlist hefur Ingólfur sýningarstýrt og skipulagt fjölda sýninga en hann var einn stofnenda Gallerí Suðurgötu 7 sem var tilraunakenndur sýningastaður í Reykjavík seint á áttunda áratugnum, og virkur í starfi sýningarsalarins Önnur hæð sem starfræktur var í Reykjavík um miðjan níunda áratuginn.
Hann hefur einnig sinnt myndlistarkennslu og var deildarstjóri fjöltæknideildar Myndlista- og handíðaskólans 1983 – 1993 og prófessor við Listaháskóla Íslands 2000–2007. Árið 1992 bauð Donald Judd Ingólfi í vinnustofudvöl í Chinati Foundation í Marfa, Texas, til að vinna að varanlegri innsetningu sem enn stendur.
Ingólfur hefur sýnt verk sín víða bæði hérlendis og erlendis, þar á meðal í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarborg, Safni, Städtisches Museum Abteiberg, Slunkaríki, Kunstverein St. Gallen, The Chinati Foundation og Nýlistasafninu. Í febrúar 2024 kom út bókin 4 um fjórar sýningar Ingólfs með texta eftir Gavin Morrison.