Uppskeruhátíð Sumarlesturs
Bókasafn Garðabæjar, Garðatorg 7, 210 Garðabær Kort
lau. 05.09.2026 12:00
Uppskeruhátíð Sumarlesturs verður haldin laugardaginn 5.september kl. 12:00 í Bókasafni Garðabæjar, Garðatorgi 7.
Hinn óviðjafnalegi Gunnar Helgason rithöfundur með meiru mun mæta á svæðið, skemmta með upplestri úr nýjustu bók sinni og gefa öllum duglegum lestrardrekum glaðninga. Einnig verða dregnir út þrír lestrardrekar sem fá bók í verðlaun.
Gómsæt lestrarkaka verður svo í boði fyrir alla og hægt verður að kríta á torginu. Fögnum saman glæsilegum lestrarárangri!
Flytjendur
-
Gunnar Helgason
Les uppáhaldskafla úr bókum