Draumar & veruleiki

Draumar & veruleiki

Borgarbókasafnið Gerðubergi, Gerðuberg 3, 111 Reykjavík Kort

þri. 14.07.2026 08:00

TINNA er virkniúrræði fyrir unga, einstæða foreldra á vegum Reykjavíkurborgar og félags- og húsnæðismálaráðuneytisins. Í TINNU sækja þátttakendur ýmsa virkni og hafa m.a. unnið saman að listsköpun í hópi undir handleiðslu myndlistarkennarans Fríðu
Maríu Harðardóttur frá árinu 2020. Fyrsta sýning TINNU-hópsins var haldin árið 2021 í Fjölskyldumiðstöðinni í Gerðubergi en sex sýningar hafa verið haldnar síðan samstarfið hófst.
Sýningin Draumar og veruleiki er afrakstur TINNU-hópsins þar sem ungar konur hafa unnið að því að tengjast sjálfum sér og öðrum konum í gegnum sköpun myndlistar. Þær fengu fræðslu, kynntu sér efni og aðferðir, fengu þjálfun í tækni, gerðu æfingar út frá skynjun og samtali, virkjuðu forvitnina og ímyndunaraflið og fundu farveg fyrir persónulega tjáningu. Ekki síst fengu þær tækifæri til að upplifa listsköpun sem heilandi ferli.

Sýningarstjóri:
Fríða María Harðardóttir
Samstarfsaðilar/Framleiðendur:
TINNA Virknihús. Borgarbókasafnið Menningarmiðstöðinni Gerðubergi 3-5 og Fjölskyldumiðstöðin Gerðubergi.

Flytjendur

  • TINNA

    TINNA er virkniúrræði fyrir unga, einstæða foreldra á vegum Reykjavíkurborgar og félags- og húsnæðismálaráðuneytisins. Í TINNU sækja þátttakendur ýmsa virkni og hafa m.a. unnið saman að listsköpun í hópi undir handleiðslu myndlistarkennarans Fríðu Maríu Harðardóttur frá árinu 2020.

  • Borgarbókasafnið
    Borgarbókasafnið

    Reykjavík City Library

  • Fríða María Harðardóttir
    Artist and art teacher, known for her first art exhibition.