Ðe Lónlí blú bojs

Ðe Lónlí blú bojs

Salurinn, Hamraborg 6, 200 Kópavogur Kort

lau. 17.10.2026 20:00

Ðe Lónlí blú bojs er hljómsveit sem stofnuð var upp úr Hljómum síðla árs 1974, reyndar mætti með góðum rökum benda á að þetta sé sama sveitin enda skipuð sama mannskap. Tónlistaráherslur voru þó hvorki hinar sömu, né nafnið og því varla við hæfi að segja þær sömu sveitina.Upphafið má þó rekja til þess að Hljómaliðar vildu breyta um stíl, spila léttari tónlist og brugðu því á það ráð að dulbúa sveitina sem eins konar leynisveit

Á þessum tónleikum ætlum við að fara aftur til áranna 1974 - 1976 og leyfa ykkur að heyra öll vinsælustu lög þeirra, þar á meðal lög á borð við Harðsnúnu Hönnu, Heim í Búðardal, Mamma grét og mörg mörg fleiri.

Hljómsveitarstjóri og útsetningar: Magnús Þór Sveinsson

Sögumaður: Valgerður Erlingsdóttir

Hljómsveit kvöldsins:

Eiríkur Hilmisson - kassagítar

Friðrik Örn - bassi

Magnús Þór - hljómborð

Ragnar Már - saxófónn

Siggi Ingi - trommur

Yngvi Rafn - rafmagnsgítar

Söngvarar kvöldsins:

Daníel E. Arnarsson

Gísli Magna

Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm

Kristján Gíslason

Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir

Sigurður Dagbjartsson

Bakraddir:

Íris Lind Verudóttir

Rakel Pálsdóttir

Hugmynd- viðburðastjórnun og lagaval:

Hulda Jónasdóttir

Flytjendur