Ein með öllu
sun. 02.08.2026 00:00
Ein með öllu
Þessi árlega hátíð um verslunarmannahelgina býður upp á fjölda viðburða og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Meðal þess sem er í boði er tívolí, barnaskemmtun, stóri skógardagurinn í Kjarnaskógi, Óskalagatónleikar í Akureyrarkirkju, markaðsstemning í miðbænum, fjáröflunarviðburðurinn „Mömmur og möffins“ og „Sparitónleikar“ á lokakvöldinu sem eru stærstu tónleikar hátíðarinnar. Þar koma fram þekktir söngvarar, hljómsveitir og upprennandi stjörnur. Hátíðinni lýkur svo með glæsilegri flugeldasýningu.
Allar upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar og margt fleira má finna á heimasíðunni www.einmedollu.is
Hægt er að senda fyrirspurnir um hátíðina á netfangið david@vidburdastofa.is.
Flytjendur
-
Ein með öllu
Árleg hátíð um verslunarmannahelgina með fjölda viðburða.