Decolonial (Hi)stories #Parallel Portraits at Reykjavík Dance Festival

Decolonial (Hi)stories #Parallel Portraits at Reykjavík Dance Festival

Listasafn Reykjavíkur | Hafnarhús, Tryggvagata 17, 101 Reykjavík Kort

lau 14. nóv 2026 19:30

Bústaðu viðburðinn!

Betty Tchomanga færir okkur fyrstu fjóra þættina í verkaröðinni Decolonial (Hi)stories og nýtir sér pólitískan mátt leikhússins til þess að miðla þekkingu með því að koma hlutunum á hreyfingu.

Í fjórum sögutímum fáum við að kynnast nýlendusögu sem teygir sig heimsálfa á milli. Við ferðumst í tíma og rúmi frá Frakklandi til Benín, með viðkomu í Alsír og Eþíópíu, fyrir tilstilli líkama, radda og einstakra sagna þeirra Emmu Tricard, Folly Romain Azaman, Dalilu Khatir og Adélaïde Desseauve aka Mulunesh.
Hvernig er sögunni miðlað? Frá hvaða sjónarhornum? Hvernig tölum við um nýlendusöguna í dag?
Á sögum þeirra, sögum okkar, eru bæði sameiginlegir og ólíkir fletir, en í þeim má heyra óvænt bergmál sem ljær okkur nýjar leiðir til að tengjast hvert öðru.
Decolonial (Hi)stories #Parallel Portraits er hluti af R.O.M (Residencies On the Move) með boði frá le joli collectif – Théâtre l’Aire Libre í Frakklandi. R.O.M nýtur stuðnings í gegnum Creative Europe áætlun Evrópusambandsins, auk stuðnings frá Conseil des arts de Montréal.
Verkið var upphaflega valið á dagskrá Moving in November í Helsinki og heldur þaðan áfram til Reykjavík Dance Festival í samstarfi hátíðanna tveggja. Sýningin í Reykjavík er styrkt af Íslensk-finnska menningarsjóðnum sem hluti af sameiginlegu framtaki hátíðanna til að efla norrænt samstarf og þróa sjálfbærari leiðir til ferðalaga sviðslistaverka.
https://movinginnovember.fi/
Styrkt af Evrópusambandinu. Þær skoðanir og viðhorf sem hér koma fram eru eingöngu á ábyrgð höfunda og endurspegla ekki endilega afstöðu Evrópusambandsins eða Framkvæmdaskrifstofu Evrópusambandsins á sviði mennta- og menningarmála (EACEA). Hvorki Evrópusambandið né EACEA bera ábyrgð á þeim.
https://residenciesonthemove.eu/