Grænlensk menningarhelgi

Grænlensk menningarhelgi

Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort

sun 27. sep 2026 14:00

Bústaðu viðburðinn!

Kalak, vinafélag Íslands og Grænlands býður uppá Grænlenska menningarhelgi hér á bókasafninu. Menningarhelgin stendur yfir í þrjá daga og býður uppá allskonar fróðleik, fyrirlestra og fleira áhugavert tengd Grænlandi.
Menningarhelgin er opin fyrir öll sem hafa áhuga á Grænlandi og grænlenskri menningu!
Dagskrá
Föstudagur
· 17.00 - 18.00 1.hæð, Torgið | Setning
Karsten Peter Jensen, sendifulltrúi Grænlands á Íslandi Í kjölfarið verður leikin tónlist og boðið upp á grænlenskt snakk
Laugardagur
· 14.00 -15.00. 1. hæð, Torgið | Fyrirlestur
Guðmundur Hrafn Arngrímsson: Grænland - landið sem hefur alltaf fylgt mér
Sunnudagur
· 14.00 - 15.00. 1. hæð, Torgið | Fyrirlestur
Hjörtur Smárason Grænlenskir landkönnuðir, fyrsta ferðin á Norðurpólinn, Knud Rasmussen og Arnarulunnguaq
· 15.15 - 16.00 1.hæð, Torgið | Fyrirlestur
Valur Gunnarsson Byggð norrænna manna á Grænlandi
KALAK, vinafélag Íslands og Grænlands, var stofnað í Norræna húsinu í Reykjavík miðvikudaginn 4. mars 1992 og fagnar því 25 ára afmæli um þessar mundir. Í fyrstu stjórn KALAK voru Guðmundur Hansen formaður, Magnús Magnússon, Elísabeth B. Nielsdóttir og Kolbrún Sæmundsdóttir. Stofnfélagar voru 43.
Markmið KALAK er að vinna að auknum samskiptum Íslands og Grænlands, einkum á sviði félags- og menningarmála. Félagið hefur gegnum tíðina haldið fjölmörg mynda- og fræðslukvöld, staðið fyrir Grænlenskum dögum og stutt við samfélagsleg verkefni á Grænlandi, sérstaklega í þágu ungs fólks.
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, verkefnastjóri
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411 6100