Sæmundur Fróði
Tjarnarbíó, Tjarnargata 12, 101 Reykjavík Kort
sun. 11.10.2026 16:00
Sæmundur fróði er ný ópera eftir Þórunni Guðmundsdóttur og er um frumflutning að ræða. Það er sviðslistahópurinn Animato sem stendur að uppfærslunni.
Verkið fjallar um ævi Sæmundar fróða Sigfússonar (1056-1133) prests í Odda, sem var í hópi lærðustu Íslendinga sinnar tíðar. Fjölmargar sögur eru til af Sæmundi, ekki síst viðureign hans við Kölska en það eru þær sem óperan byggist á. Í þjóðsögunum birtist togstreitan milli góðs og ills, kímnin í sögunum kallast á við hættuna á eilífri glötun, og svo bætist við sá áhugaverði vinkill að Kölski getur brugðið sér í allra kvikinda líki. Ævi Sæmundar er því tilvalinn efniviður í óperu,
Form verksins byggir á þeirri grunnhugmynd að dauðasyndirnar séu sjö, þannig að Sæmundur glímir við Kölska og sinn eigin breyskleika í sjö senum. Óperan hefst á erindum úr Sólarljóðum, þar sem sú spurning leitar á Sæmund hvort hann hafi varið lífi sínu til góðs. Til að leita svara við því hverfum við aftur til síðasta dagsins í Svartaskóla árið 1084 og fylgjumst síðan með lífshlaupi Sæmundar fram að dauðastundu hans.
Aðalhlutverkið, Sæmundur, er í höndum Hafsteins Þórólfssonar. Kölski kemur fram í mörgum senum, en hann birtist sem karl - Gunnlaugur Bjarnason, kona – Björk Níelsdóttir og barn – Halldóra Ósk Helgadóttir. Aðrar helstu persónur eru Guðrún kona Sæmundar, Þóra vinnukona sem lætur glepjast af púkum, tveir ungir synir Sæmundar og þrír púkar.
Meðleikur er í höndum 10 manna kammersveitar sem Sólveig Sigurðardóttir stjórnar. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir og hönnuður búninga og leikmyndar er Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir.
Flytjendur
-
AnimatoSviðslistahópurinn sem stendur að uppfærslunni.
-
10 manna kammersveit
Meðleikur, stjórnað af Sólveig Sigurðardóttir
-
Hafsteinn Þórólfsson
Aðalhlutverkið, Sæmundur
-
Gunnlaugur Bjarnason
Einsöngvari
-
Björk NíelsdóttirSöngur, langspil og slagverk
-
Halldóra Ósk Helgadóttir
Barn Sæmundar.
-
Sólveig Sigurðardóttir
Flytjandi í hlutverki Mimi.
-
Ágústa Skúladóttir
Leikstjóri
-
Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir
Hönnuður búninga og leikmyndar