Dómkirkjan í 230 ár
Dómkirkjan í Reykjavík, Kirkjustræti, 101 Reykjavík Kort
sun 1. nóv 2026 17:00
Bústaðu viðburðinn!Í tilefni af 230 ára vígsluafmæli Dómkirkjunnar í Reykjavík efnir Dómkórinn í Reykjavík til tónleika í kirkjunni, á kirkjudegi Dómkirkjunnar, sunnudaginn 1. nóvember 2026 kl. 17:00.
Á tónleikunum frumflytja kórinn og Matthías Harðarson dómorganisti þrjú ný tónverk, sem kórinn hefur pantað sérstaklega í tilefni afmælisins. „Þá þú gengur í Guðs hús inn" er eftir Finn Karlsson, en textinn er eftir Hallgrím Pétursson og stendur fyrsta erindið letrað yfir dyrunum inn í kirkjuna. „Vorsins gleði" er eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, við ljóð Karls Sigurbjörnssonar og að síðustu er það „Í Paradís" fyrir orgel eftir Sigurð Sævarsson. Tónskáldasjóður RÚV og STEFs veitti rausnarlegan styrk til verkefnisins og þakkar Dómkórinn veittan stuðning.
Á efnisskrá tónleikanna verður ennfremur fjölbreytt úrval verka sem hafa verið samin fyrir kórinn í áranna rás, eða tengjast kórnum, dómorganistum og Dómkirkjunni á einn eða annan hátt. Þá er það sérstakt gleðiefni að á tónleikunum bætist Dómkórnum liðsauki úr hópi fyrrum félaga. Það er hópur kórsöngvara sem söng í Dómkórnum undir stjórn Marteins Hunger Friðrikssonar, dómorganista. Marteinn stýrði Dómkórnum 1978-2010 og átti á sínum tíma frumkvæðið að því að fá tónverk samin sérstaklega fyrir kórinn, þá í tengslum við Tónlistardaga Dómkirkjunnar.
Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!