Draugar Dýrafjarðar – hátíðarsýning á Veturnóttum

Draugar Dýrafjarðar – hátíðarsýning á Veturnóttum

Kómedíuleikhúsið Haukadal, Svalvogavegur, 471 Haukadalur Kort

fim 22. okt 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Kómedíuleikhúsið býður til sérstakrar hátíðarsýningar á Veturnóttum á hinum magnaða og áhrifaríka leik Draugar Dýrafjarðar eftir Elfar Loga Hannesson.

Leikurinn var sýndur í sumar við miklar vinsældir og snýr nú aftur í eina sérstaka sýningu 22. október kl. 20:00.

Draugar Dýrafjarðar er krassandi leikstykki byggt á mögnuðum og dagsönnum draugasögum úr Dýrafirði. Víða er skyggnst inn í handanheima og við sögu koma einhverjir mögnuðustu draugar fjarðarins, með Gunnhildi fremsta í flokki, sem gekk aftur lengst allra drauga Dýrafjarðar – eða nærri eina öld.

Leikurinn er sýndur á söguslóðum í leikhúsinu í Haukadal í Dýrafirði, en í þeim dal er draugagangur sagður hafa verið hvað mestur og magnaðastur í öllum firðinum.

Hér er óvænt og óvætt verk á ferðinni sem mun án efa veita flestum viðeigandi hroll.

Höfundur / leikari: Elfar Logi Hannesson
Búningar: Sunnefa Elfarsdóttir
Lýsing: Sigurvald Ívar Helgason
Leikmynd / leikstjórn: Marsibil G. Kristjánsdóttir

Tryggðu þér miða tímanlega og upplifðu Drauga Dýrafjarðar á sjálfum söguslóðunum. 

Flytjendur