Dúlludraugahús
Safnaðarheimilið í Innri-Njarðvík, Njarðvíkurbraut 38, 260 Njarðvík Kort
lau 31. okt 2026 17:00
Bústaðu viðburðinn!👻🎃 DÚLLUDRAUGAHÚS Á HREKKJAVÖKU! 🎃👻
Laugardaginn 31. október, kl. 17:00–20:00, opnum við Dúlludraugahúsið í safnaðarheimilinu í Innri-Njarðvík
Þetta er í þriðja sinn sem barna- og unglingastarf Njarðvíkursóknar býður upp á Dúlludraugahús í tilefni hrekkjavökunnar. 🎃
👻 Dúlludraugahúsið er sérstaklega hugsað fyrir yngstu börnin og er því ekki ógnvekjandi draugahús, heldur skemmtilegur og notalegur staður þar sem ýmislegt verður í boði fyrir börnin.
🧡 Allir eru hjartanlega velkomnir! Hvort sem þið eruð á ferðinni að sníkja nammi eða langar einfaldlega að kíkja við og njóta samverunnar. Ungir sem aldnir eru velkomnir að líta inn!
🧙♀️ Við hvetjum jafnt unga sem aldna til að mæta í búningum og taka þátt í hrekkjavökugleðinni!
📍 Safnaðarheimilið í Innri-Njarðvík, Njarðvíkurbraut 38
🕔 Laugardaginn 31. október, kl. 17:00–20:00
🎃 Hlökkum til að sjá ykkur! 👻