Ég vildi að það væri auðveldara fyrir þig að vera til - Þórir Georg í Núllið Gallerý
Núllið Gallerý, Bankastræti 0, 101 Reykjavík Kort
fös 27. nóv 2026 17:00
Bústaðu viðburðinn!Ég vildi að það væri auðveldara fyrir þig að vera til. Ég vildi að öllum fyndist þú jafn töff og þú vildir að þú værir. Ég vildi að líf þitt þætti einhvers virði. Ég vildi að megavika væri ekki orðin svona dýr. Ég vildi að fólk gæfi sér tíma til að skilja þig á þínum forsendum. Ég vildi að þú værir með fleiri tiktok fylgjendur. Ég vildi að við byggjum í heimi sem að vildi að við værum til. Ég vildi að þú fengir vinnuna sem þig langar í þó þú uppfyllir engin af skilyrðunum. Ég vildi að þú kynnir að elska sjálft þig. Ég vildi að yfirmaðurinn þinn skildi að stundum nennir þú bara ekki í vinnuna.
27. nóvember opnar listamaðurinn Þórir Georg sýna þriðju sýningu í Núllinu; „Ég vildi að það væri auðveldara fyrir þig að vera til“.
Þórir notast við frumstætt og gróft myndmál í bland við texta til að búa til handprentuð verk sem dansa á línunni á milli súrealísks húmors og örvæntingarfullrar einlægni.
Sýningin verður opin á eftirfarandi tímum:
27. nóvember 17:00 - 21:00 OPNUN
28. nóvember 13:00 - 17:00
29. nóvember 13:00 - 17:00