Bátasmiðja Memmm
Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
lau. 22.08.2026 13:00
Memmm slær upp hátíðarþorpi á Hörputorgi á Menningarnótt. Þar geta börn og fjölskyldur átt nærandi samverustund, spreytt sig á bátasmíði, buslað í vatni, blásið tilkomumiklar hátíðarsápukúlur og gengið á stultum svo fátt eitt sé nefnt.
Memmm hannar og heldur viðburði sem stuðla að nærandi samveru fyrir alla fjölskylduna. Áhersla er lögð á leik, sköpun, flæði og tengingu við náttúru og vísindi. Viðburðir Memmm geta ýmist verið innandyra eða úti við og markmiðið er ávallt að hvetja til þátttöku allra. Memmm samanstendur af fagfólki sem hefur áhuga á velferð fjölskyldna á Íslandi.
Flytjendur
-
Opni Leikskólinn Memmm
Opni leikskólinn Memmm býður fjölskyldum upp á að koma saman í öruggt og fjölskylduvænt umhverfi.
-
Menningarnótt
Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar.