Guðrið Hansdóttir - Útgáfutónleikar Sýrublað
Edinborgarhúsið, Aðalstræti 7, 400 Ísafjörður Kort
fös. 23.10.2026 20:00
Útgáfutónleikar Guðríð Hansdóttir - Sýrublað
Hin ástsæla færeyska tónlistarkona Guðrið Hansdóttir snýr aftur til Íslands í október 2026 með glænýja og ferska tónlist í farteskinu!
Guðrið fagnar útgáfu sjöundu hljóðversplötu sinnar, Sýrublað, með því að leggja í umfangsmikla hringferð um landið þar sem hún mun halda 9 tónleika á tímabilinu 21. til 29. október.
Platan Sýrublað kom út fyrr á árinu við frábærar viðtökur. Um tónlistina segir Guðrið sjálf: „Tónlistin er eins og að bíta í túnútublað (súru) – fersk, stökk, græn og örlítið súr.“ Platan er pródúseruð af Høgni Lisberg og einkennist af grípandi og draumkenndum indí-pop hljómi sem Guðrið er þekkt fyrir. Guðrið hefur verið áberandi í færeysku og norrænu tónlistarlífi allt frá aldamótum, bæði sem sólólistamaður og sem hluti af rafpopp-dúettinum BYRTA.
Fyrri plata hennar, Gult myrkur, var m.a. valin plata ársins á Færeysku tónlistarverðlaununum (FMA). Á þessu ferðalagi um Ísland verður Guðrið ekki ein á ferð, heldur fær hún til liðs við sig tvo magnaða meðspilara. Ekki missa af tækifærinu til að upplifa einn af skærustu tónlistarmönnum Færeyja í lifandi og nánu umhverfi.
Tryggðu þér miða strax!
_______________________________________________________
Flytjendur
-
Guðrið HansdóttirEin allra virtasta tónlistarkona sem Færeyjar hafa alið.