Viðeyjarmótið í skák
Friðarsúlan, Viðey, 104 Reykjavík Kort
sun. 19.07.2026 13:00
Taflfélag Reykjavíkur heldur skákmót í Viðeyjarstofu í samstarfi við Eldingu og Borgarsögusafn sunnudaginn 19. júlí. Mótið er opið öllum áhugasömum og þátttaka er ókeypis en greiða þarf í ferjuna sem leggur af stað frá Skarfabakka kl. 12:15. En athugið mótið hefst kl. 13.
Tefldar verða níu umferðir með tímamörkunum 3+2 (3 mínútur á mann og 2 sekúndur á leik). Eftir 5. umferðir verður gert stutt hlé á taflmennsku. Teflt verður í hlýlegu umhverfi á efri hæð Viðeyjarstofu en þar má kaupa ljúffengar veitingar á meðan á móti stendur.
Hámarks keppendafjöldi er 50.
Vinsamlegast skráið ykkur á mótið sjá meðfylgjandi hlekk í viðburðinum. Við mælum með að þið bókið ferjumiða hjá www.elding.is um leið og þið skráið ykkur á mótið.
Verðlaun á mótin eru:
– 1. verðlaun: 15.000 kr.
– 2. verðlaun: 10.000 kr.
– 3. verðlaun: 5.000 kr.
Gjald í ferjuna fram og til baka eru 2.500 kr. fyrir fullorðna og 1.250 kr. fyrir börn 7 – 17 ára í fylgd fullorðinna. Börn 6 ára og yngri sigla frítt (ath. aðeins er hægt að bóka 3 börn fyrir hvert foreldri / forráðamann). Við minnum á að handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og handhafar Gestakortsins (Citycard.is) sigla frítt.
Aðgengi: Til að komast í ferjuna til Viðeyjar er gengið um landgang sem er misbrattur eftir sjávarföllum og fyrir vikið er aðgengi fyrir hreyfihamlaða með miklum takmörkunum. Leiðsöguhundar eru velkomnir í Viðey. Nánari upplýsingar um aðgengi má finna hér á vef Borgarsögusafns https://borgarsogusafn.is/adgengi
Viðey er hluti af Borgarsögusafni Reykjavíkur - Eitt safn á fimm frábærum stöðum

Flytjendur
-
Borgarsögusafn Reykjavíkur / Reykjavík City Museum
Eitt safn á fimm frábærum stöðum. Borgarsögusafn heyrir undir Reykjavíkurborg.
-
Taflfélag ReykjavíkurChess Club
-
EldingHost of the Easter Egg Hunt