Íslandsmeistaramótið í Skeggvexti

Íslandsmeistaramótið í Skeggvexti

RVK Bruggfélag Tónabíó, Skipholt 33, 105 Reykjavík Kort

lau. 12.09.2026 20:00

Skeggfjelag Reykjavíkur og nágrennis kynnir,

Íslandsmeistaramótið í skeggvexti verður haldið þann 12. September í Tónabíó, Skipholt 33, Reykjavik og öllum er velkomið að taka þátt.

Keppnin verður til styrktar Píeta samtökunum en Píeta samtökin sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og styðja við aðstandendur.

Húsið opnar klukkan 19:00 og hefst þá úthlutun gagna (númers og flokks). Keppnin sjálf byrjar klukkan 20:00

Keppnisgjald er 2.500 kr og greiðist við inngang

Aðgangseyrir fyrir áhorfendur er 2.500 kr og greiðist við inngang

Nauðsynlegt er að skrá sig á www.beard.is fyrir keppnisdag

Aldurstakmark inn á staðinn er 20 ára

Flokkar:

Yfirvaraskegg

Yfirvaraskegg samanstendur af andlitshári fyrir ofan efri vör. Í alþjóðlegum keppnum er miðað við að yfirvaraskegghár geti byrjað að vaxa frá allt að 1,5 cm út frá enda efri varar.

Fullt skegg

Fullt skegg samanstendur af hári á efri og neðri vör, höku, kinnum og hliðar brúnum, án náttúrulegs eða rakaðs skarðs. Lengd er mæld frá botni neðri varar.

Hálf rakað skegg

Hálfskegg er skegg sem er hvorki fullt skegg né yfirvaraskegg en er til dæmis fullt skegg með ekkert yfirvaraskegg eða rakað skarð á höku.

Skegg með frjálsri aðferð (gervi skegg)

Þessi flokkur er opinn öllum sem vilja taka þátt. Ætlast er til að keppandi , en það má nota hvaða efni sem er til að gera skeggið sama hvort að það líkist hári eða ekki.

Skeggið verður að vera fest við höfuðið (höfuðkúpa og/eða kjálka, ekki utan um hálsinn) og verður að hanga handfrjáls. Skeggið verður að halda lögun skegg stílsins sem var valinn. Dómarar geta dregið frá stig ef að skeggið er ekki skegglaga eða í samræmi við skeggstíl sem valinn var.

Flytjendur