VAKA | Færeyskur hringdans

VAKA | Færeyskur hringdans

Bókasafn Kópavogs | Aðalsafn, Hamraborg 6a, 200 Kópavogur Kort

lau. 19.09.2026 14:30

Í þessari vinnustofu kynnast þátttakendur færeyska hringdansinum — dansi sem hefur varðveist í óslitinni hefð frá miðöldum og er samofinn færeyskri menningu og tungumáli. Farið verður yfir sögulegan uppruna dansins og hvernig hann hefur lifað fram á okkar daga, auk þess sem tónrænir og hrynrænir eiginleikar kvæðanna verða kynntir. Þátttakendur læra einföld dansspor og viðlög og dansa 2–3 stef úr færeyska dansarfinum, en efni hverrar ballöðu verður kynnt áður en hún er dönsuð. Allir í salnum taka þátt.

Leiðbeinendur eru Sharon Weiss og Kristian Blak frá Færeyjum. Sharon hefur leikið á blokkflautu um allan heim frá áttunda áratugnum, meðal annars með hljómsveitunum Spælimenninir og Kvonn. Hún er þjóðdansari af lífi og sál og kennari sem hefur unnið að því að koma bæði færeyska dansinum og öðrum þjóðdönsum inn í skólastarf. Kristian er tónskáld og píanóleikari sem kemur víða við í tónlistarlífinu — hann semur fyrir alþjóðlegar klassískar hljómsveitir, leikur í heimabyggð og fer í tónleikaferðir sem hljóðfæraleikari og hljómsveitarstjóri með djass-, þjóðlaga- og heimstónlistarhópum.

VAKA þjóðlistahátíð fer fram dagana 13.– 19. september 2026 í Kópavogi. Á hátíðinni mætast tónlist, dans, handverk, sagnalist og kveðskapur í fjölbreyttri dagskrá fyrir forvitna gesti á öllum aldri. Hvort sem þú kemur til að hlusta, læra, dansa, syngja, skapa eða einfaldlega njóta samverunnar, þá gefst þér kostur á að kynnast fjölbreyttum alþýðulistum á nýjan hátt – og verða hluti af þeim. VAKA leggur áherslu á að gera sem flestum kleift að sækja viðburði hátíðarinnar. Því eru í boði þrír mismunandi verðflokkar á flesta viðburði og velur hver gestur það verð sem hentar best. Tryggið ykkur hátíðarpassa sem veitir ykkur aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar.

Allar upplýsingar um hátíðina má finna á www.vakareykjavik.is og á samfélagsmiðlum Vökufélagsins.

Flytjendur