Myndflos / Punch needle

Myndflos / Punch needle

Faxatorg - Faxafen (2. hæð), Faxafen 10, 108 Reykjavík Kort

fös. 14.08.2026 09:00

Námskeiðsflóran blómstrar í Flóð & fjöru og nú bætast við námskeið í myndflosi (punch needle). Þessari skemmtilegu útsaumsaðferð er oft líkt við að teikna á striga en í stað þessa að nota penna og blað notum við flosnál, garn og útsaumsklút (java),

Á námskeiðinu fá þátttakendur að prufa sig áfram í myndflosinu í flæði og sköpun í notalegu umhverfi á vinnustofu Flóðs & fjöru. Allt efni verður á staðnum og fá þátttakendur að taka með sér heim það sem þau flosa í tímanum.

10% afsláttur er svo af flosnálum og útsaumsklútum á námskeiðsdegi ef einhver eru spennt að halda áfram þegar heim er komið.

Dagsetning: 14. ágúst

Tímasetning: kl. 9:00 - 11:30

Skráningargjald: 12900kr

Engin handavinnukunnátta þarf að vera til staðar. Yljum okkur á hlýjum tebolla og njótum huggulegrar stemningar. Kennari Hera Sigurðardóttir.

Sköpun og handavinna eykur vellíðan, að sjá verk verða til í þínum eigin höndum er valdeflandi og ánægjulegt. Að leggja af stað með hugmynd og ásetning en leyfa flæði hugans, hjartans og handanna að skapa verkið og treysta því að útkoman verði sú sem hún á að vera. Þetta er frelsandi gjörningur innan ramma upphafs og endis og útkoman er þín.

Flytjendur

  • Flóð & fjara
    Flóð & fjara

    Handunnar macramé vörur. Námskeið í macramé, hekli & prjóni fyrir alla aldurshópa. Söluaðili Bobbiny bómullargarns

  • Hera Sigurðardóttir
    Hera Sigurðardóttir

    Kennari með menntun í mannfræði og hagnýtri menningarmiðlun, víðtæk reynsla af starfi með börnum.