Yasiin Bey
Gamla bíó, Ingólfsstæti 2a, 101 Reykjavík Kort
fim. 10.09.2026 19:00
Uppfærð dagsetning! Yasiin Bey í Gamla bío þann 10. sept 2026
Þann 10. sept 2026 stígur Yasiin Bey, betur þekktur sem Mos Def, á svið í Gamla Bíó í Reykjavík.
Aldurstakmark: 20 ára nema í fylgd með forráðamanni.
Yasiin Bey áður kallaður Mos Def er einn af algjörum hornsteinum conscious hip-hop og hefur í yfir tvo áratugi verið meðal áhrifamestu listamanna sinnar kynslóðar. Sem hluti af Black Star ásamt Talib Kweli, og með tímamótaplötur á borð við Black on Both Sides og The New Danger, mótaði hann nýja sýn á það hvað hip-hop gæti verið: hugmyndaríkt, pólitískt meðvitað og listilega djúpt. Ferill hans spannar einnig samstarf við listamenn á borð við Kanye West Hi Tek, Madlib og J Dilla.
Listamannsnafnið Yasiin Bey markar ekki endurímyndun heldur afstöðu. Það endurspeglar þá hugsjón sem hefur alltaf einkennt feril hans: að nota tónlist sem miðil fyrir merkingu, sannleika og menningarlega ábyrgð.
Á sviði er Yasiin Bey þekktur fyrir einstaka nærveru. Flutningurinn er hrár, lifandi og ófyrirsjáanleg upplifun þar sem hip-hop, spuni, pólitík og persónuleg tjáning renna saman í eitt.
Kvöld sem enginn ætti að láta framhjá sér fara!