Bútasaumsljóð - ritsmiðjur með Karólínu Rós Ólafsdóttur

Bútasaumsljóð - ritsmiðjur með Karólínu Rós Ólafsdóttur

Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort

mið. 09.09.2026 16:30

Í þessari smiðju munum við skoða aðferðir til að skrifa ljóð og texta út frá orðum sem við elskum, orðum sem finnum, orðum sem okkur langar að skilja betur eða nota meira. Við munum sækja innblástur í bækur, tímarit og orðabækur á Borgarbókasafninu, við munum fá orð í láni úr öðrum tungumálum og úr myndmáli frá öðrum stöðum til þess að sauma saman fallegar myndir!
Allur aldur og öll íslenskukunnátta velkomin! Þátttaka ókeypis, engin skráning, bara mæta.
Karólína Rós Ólafsdóttir er skáld og listakona. Hún skrifar bæði á íslensku og ensku og vinnur þvert á ritlist, myndlist og þýðingar. Verk hennar hafa birst á prenti, í gjörningum og á sýningum á Íslandi, í Þýskalandi, Póllandi og á Bretlandseyjum.
Þetta verkefni er hluti af samljóða - ritsmiðjuseríunni og samvera verkefni. Samvera er styrkt af Þróunarsjóði innflytjenda.
Nánari upplýsingar veitir:
Martyna Karolina Daniel
Verkefnastjóri – Aðgengi og samfélagsleg þátttaka
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is