Einhverfufræðsla fyrir aðstandendur

Einhverfufræðsla fyrir aðstandendur

Í streymi, , Reykjavík Kort

mið 18. nóv 2026 16:30

Bústaðu viðburðinn!

Þetta námskeið er ætlað ömmum, öfum, systkinum og öðrum nánum fjölskyldumeðlimum sem vilja kynnast betur því hvernig einstaklingar á einhverfurófi upplifa heiminn. Við förum yfir einkenni og útskýrum hvernig einhverfuróf birtist á mismunandi hátt hjá mismunandi einstaklingum, ræðum við hverju er að búast í samskiptum og tökum á algengum mýtum og misskilningi sem gjarnan berst um í fjölmiðlum og samfélaginu.

Markmiðið er einfalt: að þú getir mætt fjölskyldumeðlimum þínum með skilningi og öryggi — og verið honum eða henni raunverulegur stuðningur.

Verð: 19.900 kr.

Leiðbeinandi: Áslaug Melax

Hvar og hvenær: 18.nóvember kl 16:30-18:30

*ATH: Stéttarfélögin Aldan, Samstaða, Kjölur, Sameyki, Verslunarmannafélag Skagafjarðar og stéttarfélög sem eru aðilar að Iðunni greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn. (Athugið að þetta á við greiðandi félagsmenn í flestum tilfellum og hefur ekki áhrif á persónulegan námsstyrk félagsmanna) Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi