Eldur í öskunni leynist - Útgáfuhóf!
Forlagið útgáfa, Fiskislóð 39, 101 Reykjavík Kort
þri 20. okt 2026 17:00
Bústaðu viðburðinn!Í tilefni útgáfu bókarinnar Eldur í öskunni leynist eftir Margréti Höskuldsdóttur verður blásið til útgáfuhófs í Bókabúð Forlagsins þriðjudaginn 20. október kl. 17:00.
Höfundur les upp og áritar bækur, léttar veitingar verða í boði og bókin á sérstöku útgáfutilboði.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Um bókina:
Eldgosið í Heimaey árið 1973 er í algleymingi og þrjú systkini frá Eyjum eru send í fóstur vestur á firði. Fimmtíu árum síðar snýr eitt þeirra aftur og um svipað leyti finnast mannabein á Dynjandisheiði. Bergur er settur í málið en nýtur aðstoðar Rögnu á bak við tjöldin. Hverjum tilheyra beinin og af hverju virðist eldri kynslóðin í lögreglunni á Ísafirði treg til að rannsaka málið af fullum þunga?
Eldur í öskunni leynist er fjórða bók Margrétar S. Höskuldsdóttur og þriðja sagan um lögregluteymið Rögnu og Berg. Önnur sagan, Lokar augum blám, hlaut Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin árið 2025.