ELMA kemur heim á Skagann! Forsýning í Bíóhöllinni (Uppselt)🎬
Bíóhöllin, Vesturgata 27, 300 Akranes Kort
mið 14. okt 2026 20:00
Bústaðu viðburðinn!UPPSELT - Höfum samband við þau sem eru skráð á biðlista ef miðar losna :)
Akraneskaupstaður, Bíóhöllin, Síminn og Glassriver bjóða íbúum Akraness á sérstaka forsýningu á nýju spennuþáttunum ELMU þriðjudaginn 14. október kl. 20:00 í Bíóhöllinni.
Þættirnir eru byggðir á Marrið í stiganum eftir skagakonuna Evu Björgu Ægisdóttur og gerast að stórum hluta á Akranesi. Forsýningin er jafnframt þakklætisvottur til þeirra fjölmörgu íbúa og fyrirtækja sem tóku þátt í verkefninu og studdu við tökur hér á Skaganum.
Eva Björg og fulltrúar Glassriver ávarpa gesti fyrir sýningu, Síminn verður með glaðning og Akraneskaupstaður býður upp á popp.
ATH - Uppselt er á viðburðinn, við tökum við skráningu á biðlista til klukkan 20:00 7.10.2026
https://forms.cloud.microsoft/e/isekncN9UD
Verið velkomin! 🍿✨