Er þetta allt og sumt?
Tjarnarbíó, Tjarnargata 12, 101 Reykjavík Kort
mið 28. okt 2026 20:00
ENDALOKIN ERU Í NÁND!
Er hægt að réttlæta það að elta draumana sína þegar heimsendir er á allra næsta leiti? Í Er þetta allt og sumt? fær Patrick Egersborg þá Rigoletto, Javert, Macbeth og Hollendinginn fljúgandi til liðs við sig til að svara þeirri spurningu.
Í örvæntingarfullri tilraun til að láta drauma sína rætast áður en heimurinn líður undir lok, fléttar Patrick ýmsum aríum úr nokkrum af stórvirkjum óperubókmenntanna saman við eigin texta í trylltri sýningu í kamikaze-stíl, fullri af svörtum húmor og sjálfsháði.
Í sýningunni tekst Patrick á við sameiginlegan heimsendakvíða okkar allra og notar verk á borð við Rigoletto, Manninn frá La Mancha, Macbeth og Hollendinginn fljúgandi sem spegil á samtímann – heim sem einkennist af stríði, skautun og loftslagshamförum. Sýningin byggir lauslega á reynslu Patricks sjálfs sem metnaðarfulls óperusöngvara sem reynir að fóta sig í heimi þar sem heimsendir virðist handan við hornið.
Uppsetningin var framleidd í samstarfi við Herning Opera Festivals em pantaði verkið eftir að brot úr því voru sýnd á Óperudögum í Reykjavík árið 2023. Sýningin var frumsýnd í Team Teatret í ágúst 2024 á Herning Opera Festival og síðar sýnd á Kulturmødet Mors.
UMSAGNIR
„Tryllt og villt áhættuspil sem heppnaðist frábærlega.“
„Heillandi og fyndið, með beittum háðsádeilubroddi á tíðarandann.“
„Patrick er framúrskarandi barítón og eins og háfleyg eldflaug í sinni eigin hugmyndaríku uppfærslu“
Herning Folkeblad, ágúst 2024
Umsögn um frumsýningu IS THIS IT? í ágúst 2024.
FLYTJENDUR
Patrick Egersborg, bass-barítón
Stefan Ibsen Zlatanos, píanó
Um flytjendurna
Patrick Egersborg er norskur bass-barítón sem er búsettur í Osló sem hefur vakið athygli fyrir hlýjan raddblæ og sterka sviðsnærveru. Hann stundaði nám við Hochschule für Musik „Hans Eisler“ í Berlín og Óperuakademíunni í Osló (KHiO).
Nýlega söng hann hlutverk Conte di Luna í Il trovatore með Óperunni í Kristiansund, Mr. Ford í The Merry Wives of Windsor á Grimeborn-hátíðinni í London og Silvio og Tonio í Pagliacci á Copenhagen Opera Festival, þar sem hann hefur verið reglulegur gestasöngvari. Egersborg hefur einnig komið fram með óperufélögum á borð við RingsakerOperaen, Opera Østfold og Grange Park Opera í Bretlandi.
Í október 2023 söng hann hlutverk Saksbehandler í heimsfrumflutningi óperunnar Systemet eftir Oda Fiskum og Gísla Jóhann Grétarsson í Hörpu á Óperudögum, auk þess sem hann tók þátt í uppfærslu verksins með Opera Trøndelag.
Árið 2024 frumsýndi hann sína fyrstu einleikssýningu, Is This It?, sem var samin að beiðni Herning Opera Festival í Danmörku.
Samhliða söngferlinum starfar Egersborg sem framleiðandi og listrænn stjórnandi hjá Operakollektivet, norsku óperufélagi sem framleiðir og stendur að nýjum óperuuppfærslum.
Stefan Ibsen Zlatanos (f. 1984) ólst upp í mikilli tónlistarfjölskyldu og gat sagt nafnið hans Bach áður en hann gat almennilega talað. Hann hóf tónlistarnám fimm ára gamall og stundaði síðar nám við Norska tónlistarháskólann undir handleiðslu Liv Glaser og við Hochschule für Musik Hanns Eisler í Berlín hjá Galina Iwansowa.
Samstarfsfólk Stefans lýsir honum sem fjölhæfum, tjáningarríkum og músíkölskum píanista með sterkt innsæi. Hann er eftirsóttur píanóleikari og spilar mismunandi tónlistarstíla, allt frá klassískri og kammertónlist til djass, samtímatónlistar, þjóðlagatónlistar frá ýmsum heimshornum og dægurtónlistar.
Auk þess að koma fram sem píanisti semur Stefan eigin tónlist og útsetur verk annarra. Fyrsta plata hans kom út árið 2015 og upptökur með honum má meðal annars finna á Spotify. Hann hefur einnig stundað söngnám um árabil og starfar sem kórstjóri og organisti.
Stefan er með meistaragráðu frá Norska tónlistarháskólanum og stundaði auk þess nám við Hochschule für Musik Hanns Eisler í Berlín. Tónlistin hefur leitt hann víða um heim og hefur hann komið fram meðal annars í Grikklandi, Spáni, Ítalíu, Aserbaídsjan, Þýskalandi, Póllandi, Tyrklandi, Ungverjalandi, Úkraínu, Litháen, Lettlandi, Slóveníu, Írlandi, Englandi, Hollandi, Danmörku, Svíþjóð og Bandaríkjunum.