EX LIBRIS V – Barokk-Bröns. Eitt sinn fór ég yfir Rín

EX LIBRIS V – Barokk-Bröns. Eitt sinn fór ég yfir Rín

Edda - Hús íslenskunnar, Arngrímsgata 5, 107 Reykjavík Kort

lau 1. maí 2027 12:00

Bústaðu viðburðinn!

Tónleikarnir fara fram á bókasafninu í Eddu og tilheyra tónleikaröðinni Ex Libris.

Halldór Bjarki Arnarson leikur á sembal og Soko Yoshida á barokkfiðlu.

Lagt verður upp í ferðalag í tónum gegnum Evrópu á ofanverðri 17. öld. Við stöldrum við í Frakklandi, á Ítalíu, í Norður-Þýskalandi og á Englandi og á hverjum stað fáum við að heyra sýnishorn af tónlistarsenunni þar í bæ.

Að hverju tónverki loknu tekur við spunaþáttur sem innblásinn er af efninu og notar mótíf verksins og stíl til að skapa eitthvað nýtt í augnablikinu.

Nánar um efnisskrána:

Efnisskráin er innblásin af því hvernig tónlistarmenn barokksins ferðuðust milli landa, bæði til að leika listir sínar en einnig til að kynnast nýjum straumum og stefnum og bæta þeim í verkfæratöskuna sína.

Einn slíkur tónlistarmaður var semballeikarinn Johann Jakob Froberger. Á miðjum tónleikunum verður leikið einstakt verk eftir hann, Allemande faite en passant le Rhin. Um er að ræða stuttan danskafla sem tónskáldið samdi við eigin texta. Frásögnin er sannsöguleg og fjallar um grátbroslegar björgunartilraunir drukkinna skipsmanna um nótt eftir að aðalsmaður dettur fyrir borð og lendir í ánni Rín miðri. Í nótum verksins má sjá tölustafi við ýmsar hendingar sem kallast á við númer í textanum svo að auðvelt er að sjá hvaða hluti verksins á við hvaða textabrot.

Auk Frobergers heyrum við tónlist ítalska fiðlusnillingsins Nicola Matteis sem sagt er að hafi ferðast fótgangandi um Þýskaland með fiðluna í bakpokanum. Hann varð svo vinsæll tónlistarmaður og kennari á Englandi.

Við fáum einnig innsýn í franska barokkstílinn gegnum Airs de Court (hirðsöngva) eftir Sebastien Le Camus sem var tónskáld við hirð Lúðvíks þrettánda og fjórtánda í Versölum.

Og við lítum þar að auki við í Rómarborg, mikilli menningarmiðstöð í Evrópu 17. aldar, þar sem fiðluleikarinn Aldebrando Subissati hóf feril sinn áður en hann fluttist til Póllands til að starfa við hirð Jóhanns II Kasímírs í Varsjá.

Nánar um flytjendurna:

Soko Yoshida er fiðlu- og víóluleikari sem sérhæfir sig í tónlist fyrri alda. Við nám í Listaháskólanum í Tókýó, Gedai, þaðan sem hún útskrifaðist með ágætiseinkunn, kynntist hún barokkfiðlunni hjá Natsumi Wakamatsu. Þessi kynni kveiktu hjá henni brennandi áhuga á gamalli tónlist og hefur hún helgað sig henni allt frá því.

Árið 2018 flutti Soko til Sviss í frekara nám á barokkfiðlu hjá Leilu Schayegh í Schola Cantorum Basiliensis og uppskar þar tvær meistaragráður. Í Basel lagði hún einnig stund á miðaldafiðluleik hjá Baptiste Romain og sögulegan spuna hjá Nicola Cumer og Dirk Börner.

Árið 2022 vann hún fyrstu verðlaun í alþjóðlegu barokkfiðlukeppninni sem kennd er við José Herrando á Spáni. Hún er stofnmeðlimur tónlistarhópsins El Gabinete de Música sem rekur tónleikaröðina Das Musikzimmer í Basel og hefur stigið á svið víða í Evrópu.

Halldór Bjarki Arnarson er tónlistarmaður sem farið hefur um víðan völl í músíkheimi Íslands og Evrópu. Hann stundaði fyrst nám við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og lauk síðan tveimur bakkalársgráðum, annarri í hornleik og hinni í semballeik, frá tónlistarháskólunum í Hannover og Den Haag.

Halldór lauk meistaranámi í semballeik 2022 frá Schola Cantorum Basiliensis. Í kjölfarið lagði hann stund á nám í sögulegum spuna á sembal og orgel við sama skóla. Frá árinu 2024 hefur Halldór starfað sem organisti við Kirkju Heilags Anda í Suhr, Sviss.

Halldór er fastur meðlimur tónlistarhópsins Amaconsort sem hreppti meðal annars fyrstu verðlaun í hinni virtu „Van Wassenaer“-keppni í Utrecht sumarið 2021. Samhliða því spilar hann með Ensemble histoirefuture í verkefninu Musica Transalpina sem rannsakar tengingu tónlistar og náttúrulífs kringum Alpafjöll.

Um tónleikaröðina Ex Libris:

Verið velkomin að hlýða á kammertónlist í hinum glæsilega bókasal Eddu í vetur.

Í tónleikaröðinni er annars vegar lögð áhersla á samtímatónlist og hins vegar á nýsköpun í flutningi eldri tónlistar, bæði þjóðlegrar tónlistar og barokks.

Allir tónleikarnir fara fram í bókasafni Eddu á laugardögum og hefjast klukkan 12 og standa í tæpa klukkustund.

Dagskrá vetrarins: https://arnastofnun.is/is/ex-libris-tonleikarod