Excel - Pivot

Excel - Pivot

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Kort

fim 11. feb 2027 12:30

Bústaðu viðburðinn!

Langar þig að leysa krafta Excel almennilega úr læðingi? Hér er kafað ofan í virkni og nytsemi svokallaðra pivot tafla í Excel.

Á námskeiðinu er farið ítarlega í veltitöflur (e. pivot) og hvernig nota má Excel við framsetningu og úrvinnslu gagna. Fjallað er um það hvernig búa má til kvik mælaborð (dýnamísk) og birta gögn byggt á vali. Áhersla verður lögð á vinnslu hagnýtra verkefna í gegnum allt námskeiðið og þátttakendur aðstoðaðir við að setja efni námskeiðsins í samhengi við sín daglegu störf.

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa góðan grunn í Microsoft Excel, svo sem góða þekkingu á helstu innbyggðu föllum. Námskeiðið hentar einnig þeim sem vilja auka hæfni sína í Excel og opna dyr að flóknari og öflugri hliðum þess.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

Veltitöflur (PivotTable)

  • Uppsetning á gögnum fyrir veltitöflur og auðgun gagna.
  • Virkni veltitaflna, kosti og galla.
  • Notkun sía (filter) og sneiðara (slicer) til að birta gögn.
  • Hvernig vísa má í veltitöflur með formúlum.
  • Pivot gröf og hvernig smíða má mælaborð með því að tengja saman töflur og gröf.