Sveppafár smiðja

Sveppafár smiðja

Borgarbókasafnið Gerðubergi, Gerðuberg 3, 111 Reykjavík Kort

fös. 24.07.2026 12:00

Ert þú vitlaus í sveppi? Langar þig að kynnast sveppalingunum Slímóraling og Jötunglíma? Langar þig að vita hvernig Jötunglíma segir ,,halló “? Eða hvernig Slímóralingur tekur sporin?
Sveppafár býður aðdáendum sveppa að taka þátt í vinnustofunni Sveppafári þar sem við kynnumst leyndardómsfullum heimi sveppa. Saman munum við kanna hvernig sveppir hljóma, hreyfa sig og eiga í samskiptum við umhverfi sitt. Með hjálp ímyndunaraflsins veltum við fyrir okkur lífríki sveppa með því að safna sveppa; -hljóðum, -myndum og, -hreyfingum í einhvers konar Sveppasafn. Þessar fjölskynja vangaveltur eru liður í þróun dansverksins Sveppafárs (e.Mushroomania).
Á vinnustofunni munum við:
Búa til hljóð sem eru innblásin af sveppum.
Búa til sveppa hreyfingar.
Teikna ímyndaða heiminn sem við byggjum saman, endar með lítilli sýningu.
Engin krafa um fyrri reynslu - aðeins forvitni og ævintýragirni!
Tími og dagsetningar:
23-24. júlí frá kl 10:00-11:00 fyrir 6-8 ára
23-24. júlí frá kl 12:00-13:00 fyrir 9-11 ára
Gott að hafa í huga:
Lengd: 60 mínútur
Fjöldi þátttakenda: 12 í hverjum hóp
Tungumál: Íslenska/Enska
Fatnaður: Þægileg föt
Hvað þarf að taka með: Ekkert - allt efni er til staðar
Aðgengi: Hægt að aðlaga eftir þörfum; vinsamlegast látið vita ef þörf er á sérstakri aðstoð.
Afrakstur: Safn teikninga og hljóða sem verður sett upp og verður til sýnis í bókasafni Gerðurbergs að vinnustofu lokinni.
Sveppafár (e. Mushroomania) er verkefni dansaranna Oliviu Teresa Due Pyszko og Selmu Reynisdóttur, tónskáldsins Maria-Carmelu Raso og ljós- og rýmis hönnuðsins Katerinu Blahutova. Verkefnið kannar töfrandi heim sveppa og hlaut vinnustofu Dansverkstæðisins og ASSITEJ fyrir þróun verka fyrir unga áhorfendur (vor 2025)
Nánari upplýsingar veita:
Selma Reynisdóttir | selmareynis@gmail.com
Olivia Pyszko | oliviaduepyszko@gmail.com