Jazzhátíð Reykjavíkur Austurbæ 29. ágúst
Austurbæjarbíó, Snorrabraut 37, 105 Reykjavík Kort
lau. 29.08.2026 19:00
Kvöldpassi - Austurbær
Jazzhátíð Reykjavíkur fer fram dagana 25. – 30. ágúst 2026.
Boðið verður upp á glæsilega sex daga tónleikadagskrá þar sem jazz og spunatónlist verður í forgrunni og frábært listafólk frá Evrópu og Íslandi kemur fram.
Kvöldpassi er í boði öll kvöld hátíðarinnar og veitir aðgang að öllum tónleikum viðkomandi kvölds. Ekki er selt inn á staka tónleika á kvölddagskránni sem fer fram á nokkrum stöðum í Reykjavík.
Kvöldpassi kostar 8.990 kr. í Austurbæ en við bjóðum upp á afsláttarverð, 6.990 kr., fyrir þau sem kjósa lægra verð og sérstakt stuðningsverð fyrir velunnara hátíðarinnar, 9.990 kr.
Laugardagurinn 29. ágúst - Kvöldpassi 8.990 kr.
- 19:00 – Austurbær | Hljóð í ljóði - útgáfutónleikar (IS)
- 20:00 – Austurbær| LILJA (IS/NO)
- 21:00 – Austurbær |Jocelyn Mienniel & Charles Vetter (FR)
- 22:00 - Austurbær | hist og (IS)
Flytjendur
-
Jazzhátíð ReykjavíkurJazzhátíð Reykjavíkur hefur verið haldin árlega allt frá árinu 1990 og er næst elsta tónlistarhátíð landsins. Hátíðin er vettvangur alls þess helsta sem gerist á sviði innlendrar jazztónlistar og er hápunktur jazzlífsins á Íslandi og árleg uppskeruhátíð innlendra jazztónlistarmanna.
Meginmarkmið Jazzhátíðar Reykjavíkur er að styðja við og kynna jazztónlist og bjóða tónlistarmönnum og jazzunnendum upp á framúrskarandi vettvang og umgjörð þar sem þeir geta flutt og notið áheyrnar þess besta sem gerist í innlendri og erlendri jazztónlist. Jafnframt leggur Jazzhátíðin innlendum jazztónlistarmönnum lið með því að koma þeim á framfæri við hátíðir í öðrum löndum í gegnum samstarfsvettvang hagsmunaaðila á evrópsku jazzsenunni, European Jazz Network, en Jazzhátíð Reykjavíkur hefur verið meðlimur samtakanna undanfarin ár.
-
LiljaLILJA is a world wide touring guitar player, singer and composer from Oslo.
-
hist ogTríó sem blandar saman djass og raf tónlist
-
Reykjavík Jazz Festival25. - 30. ágúst 2026 / August 25th-30th 2026
www.reykjavikjazz.is
-
Birgir Steinn Theodórsson
Kontrabassaleikarinn
-
Þórdís Gerður Jónsdóttir
Hljómsveit