Heklað með Fözz Studio

Heklað með Fözz Studio

Borgarbókasafnið Gerðubergi, Gerðuberg 3, 111 Reykjavík Kort

mið. 07.10.2026 18:30

Heklum saman undurfallega og einfalda afganga-peysu hannaða af Stellu hjá Fözz Studio.
Hittumst á Borgarbókasafninu Gerðubergi þrjú miðvikudagskvöld í október og heklum saman.
Tilvalið bæði fyrir lengra komna og byrjendur. Aðstoð við heklið verður á staðnum.
Um er að ræða viðburðarsyrpu þar sem við hittumst þrjú miðvikudagskvöld í október og heklum saman.
Dagsetningar:
7.október kl. 18:30-20:00
14.október kl. 18:30 – 20:00
21.október kl. 18:30 – 20:00
Stella Ögmundsdóttir útskrifaðist úr textíldeild Myndlistarskólans í Reykjavík 2024 og hannar undir nafninu Fözz Studio. Stella vinnur nær eingöngu með endurnýtt efni í verkum sínum og fær efniviðurinn oftar en ekki að ráða ferðinni í hennar sköpun.
Borgarbókasafnið í Gerðubergi tekur þátt í þriggja ára alþjóðlegu verkefni sem nefnist make-a-thek. Markmið verkefnisins er að skapa vettvang fyrir sköpun og handavinnu af ýmsu tagi, deila þekkingu og læra nýjar aðferðir til að endurnýta föt og annan textíl. Verkefnið er styrkt af New Horizon styrk frá Evrópusambandinu og eru 9 almenningsbókasöfn um alla Evrópu þátttakendur í verkefninu.
Nánari upplýsingar veitir:
Ilmur Dögg Gísladóttir, deildarstjóri í Gerðubergi
ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is | 411 6170

Flytjendur