Tálgunarnámskeið - Skráning nauðsynleg
Árbæjarsafn, Kistuhylur 4, 110 Reykjavík Kort
þri. 07.07.2026 13:00
Vikuna 6.-10. júlí verður haldið skemmtilegt eins dags örnámskeið í tálgun á Árbæjarsafni með Bjarna Þór Kristjánssyni, smiði. Námskeiðið er frá kl. 13 - 16.
Þar læra krakkar réttu handbrögðin við að tálga með hníf, auk þess að læra að bora með gamaldags handbor. Í lok námskeiðsins er kveiktur lítill varðeldur og fá krakkarnir að grilla brauð á teini, ef veður leyfir.
Vinsamlegast athugið að ætlast er til að krakkar yngri en 9 ára séu í fylgd með fullorðnum.
Gjald er 3.100 kr. fyrir hvert barn og allt hráefni er innifalið í verðinu. Greitt er á staðnum. Kjósi fullorðnir að tálga með greiða þeir sama verð.
Skráning er nauðsynleg og fer fram hér:
https://outlook.office.com/book/vidburdir_borgarsogusafn@reykjavik.is/?ismsaljsauthenabled
Vinsamlegast bókið aðeins eitt barn í einu og aðeins í einn dag, pláss eru takmörkuð.
Hafið samband við vidburdir.borgarsogusafn@reykjavik.is til að komast á biðlista, bókist námskeiðið upp.

Flytjendur
-
Bjarni Þór Kristjánsson
Kennir réttu handtökin við að tálga í tré.