Jim Jefferies - Son of a Carpenter
Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
sun. 27.09.2026 20:00
Jim Jefferies kemur með nýja sýningu “Son of a Carpenter” í Eldborg, Hörpu 27. september
Ef þú móðgast auðveldlega, þá er þetta líklega ekki sýning fyrir þig.
Jim Jefferies hlífir engum og er líklega beittasti uppistandari heims í dag. Hann er þekktur fyrir að segja það sem aðrir bara hugsa. Með hráum, hreinskilnum og kolsvörtum húmor tekur hann á stórum og litlum málum, daglegum athöfnum sem og hitamálum – og enginn sleppur.
Þetta verður kvöld þar sem allt er undir og ekkert er heilagt.