Rúnalestur- lærðu að spá með rúnum
Leiklistarskólinn Opnar dyr, Síðumúli 29, 108 Reykjavík Kort
lau. 22.08.2026 10:00
Ester Sveinbjarnardóttir miðill heldur námskeið í rúnalestri.
Markmið námskeiðs er að kenna fólki að spá í Fuþark (rúnir 24 stafir + auðrún) með því að nota tengingar við norræna goðafræði.
Farið verður yfir það hvað hver og ein rún táknar og hvernig er hægt að tengja þær við spyrjandann með leiðsagnakorti. Rúnunum er kastað á kortið og svo lesið úr því.
Í samvinnu við nemendur gerum við leiðsagnakort fyrir hvern og einn á námskeiðinu og æfum okkur í að spá með rúnunum.
Þú þarft að eiga þína eigin rúnir, það sem við erum að nota í völuspá eru 25 rúnir þar sem auðarúnin er líka notuð.
Tímasetningar:
Laugardagur 22. ágúst 2026: 10:00-14:00
Sunnudagur 23. ágúst 2026: 10:00-14:00
Verð: 28.000 kr. Fyrir þá sem skrá sig fyrir 1. ágúst. 2028, annars 32.000 kr.
Námskeiðið er haldið í Síðumúli 29, 105 Reykjavík
FUÞARK – Leyndarmál eða vísdómur Ég notast við eldra kerfið sem hefur 24 rúnir og var notað frá 2. öld e. Kr. fram til þeirrar áttundu, en þá tók við nýtt stafróf sem var samansett af 16 stöfum. Yngri rúnirnar hafa aðeins fundist á Norðurlöndum og á Bretlandi.
Rúnirnar eru ekki nákvæm hljóðtákn og geta þær því borið nokkur hljóð.
Rúnunum má skipta í þrjá flokka sem kallast ættir. Hver ætt var nefnd eftir fyrstu rúninni í ættinni, Freysætt, Hagalsætt og Týsætt. Hver ætt hefur sýna tölu og hver rún tölu innan ættarinnar. Rúnirnar hafa svo hver sitt nafn og meiningu.
Í Freysætt eru rúnirnar Fé, Úr, Þurs, Ás, Reið og Kaun.
Í Hagalsætt eru; Hagall, Nauð, Ís, Ár og Sól.
Í Týsættinni eru: Týr, Bjarkan, Lögur, Maður og Ýrr.